Oddný G. Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi fjármálaráðherra leiðir lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Listi flokksins var samþykktur á fundi kjördæmaráðs Samfylkingarinnar.

Ólafur Þór Ólafsson stjórnsýslufræðingur og forseti bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar situr í öðru sæti listans. Arna Ír Gunnarsdóttir félagsráðgjafi og bæjarfulltrúi frá Selfossi er í því þriðja.

Hér má sjá efstu tíu sæti listans:

1.    Oddný G. Harðardóttir alþingismaður
2.    Ólafur Þór Ólafsson stjórnsýslufræðingur og forseti bæjarstjórnar
3.    Arna Ír Gunnarsdóttir félagsráðgjafi og bæjarfulltrúi
4.    Magnús Sigurjón Guðmundsson aðgerðarstjóri
5.    Guðný Birna Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og bæjarfulltrúi
6.    Miralem Hazeta húsvörður
7.    Arna Huld Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur
8.    Guðmundur Oddgeirsson framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi
9.    Borghildur Kristinsdóttir bóndi
10.    Marta Sigurðardóttir viðskiptastjóri og bæjarfulltrúi