Nýsmíðin Oddur á Nesi SI 76 kom til á heimahafnar á Siglufirði í fyrsta sinn á laugardaginn eftir um rúma 5 tíma siglingu frá Akureyri. Frá þessu er sagt á vefnum skoger.123.is og nokkrar myndir birtar þegar Oddur á Nesi kom að bryggju,

Hópur fólks beið á Togarabryggjunni til þess að fagna komu bátsins og þeyttu bílar flautur sínar til þess að bjóða hið nýja fley velkomið til heimahafnar.

Oddur á Nesi SI er 11,99 metrar á lengd og 5,59 metrar á breidd og 29,5 bt að stærð og er í eigu BG Nes á Siglufirði.

Í Fiskifréttum sagði Freyr Steinar Gunnlaugsson eigandi bátsins:  "Lestin er stór og rúmar 29 stykki af 660 lítra körum í botninn. Þau taka um 15 tonn af fiski. Hægt verður einnig að vera með 58 stykki 440 lítra kör, það komast tvö markaðskör í hæðina. Alls gæti báturinn ef því er að skipta borið hátt í 30 tonn í lest. "