Óðinn Jónsson hefur tekið til starfa sem ráðgjafi hjá ráðgjafa- og almennatengslastofunni Aton. Óðinn starfaði um langt árabil á Ríkisútvarpinu sem frétta- og dagskrárgerðarmaður. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Hann var fréttamaður á Norðurlöndum með aðsetur í Kaupmannahöfn, síðan þingfréttamaður, varafréttastjóri og fréttastjóri hljóðvarps RÚV, síðan fréttastjóri RÚV við sameiningu fréttastofa og um leið yfirmaður vefmála, dægurmálaumfjöllunar, svæðisstöðva og íþrótta. Síðustu árin stýrði Óðinn Morgunútvarpi Rásar 1.

Áður en Óðinn hóf störf hjá RÚV starfaði hann í nokkur ár sem textasmiður og ráðgjafi, auk þess að sinna dagskrárgerð fyrir útvarp. Óðinn nam sagnfræði, íslensku og opinbera stjórnsýslu við Háskóla Íslands.