Óðinn Valdimarsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri hjá Bílgreinasambandinu. Um nýja stöðu er að ræða hjá sambandinu og mun Óðinn hefja störf þann 1. febrúar. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu frá Bílgreinasambandinu.

Óðinn hefur starfað undanfarin 10 ár hjá Ergo, fjármögnunarþjónustu Íslandsbanka, þar sem hann hefur gegnt stöðu viðskiptastjóra fyrirtækja. Þar hefur hann m.a. haft umsjón með fjármögnunarlausnum bíla og atvinnutækja fyrir fyrirtæki, ásamt því að sinna verkefna- og greiningarvinnu með áherslu á bílamarkaðinn, bílaleigur og ferðaþjónustu.

Óðinn hefur umtalsverða reynslu og þekkingu á bílgreinunum sem mun nýtast vel í hinu nýja starfi. „Ég er í raun uppalinn frá unga aldri innan bílgreinanna, og það skilaði sér fljótt í ólæknandi áhuga og ástríðu fyrir bílum og öllu sem þeim tengist - og það fer nú ekkert minnkandi með aldrinum" segir Óðinn.

„Ég hef svo unnið megnið af minni starfsævi nátengt bílgreinunum, fyrst þegar ég var yngri sem sölumaður nýrra bíla og sem sumarstarfsmaður hjá forverum Ergo í bílafjármögnun, og svo að sjálfsögðu í núverandi starfi síðastliðin 10 ár þar sem ég hef öðlast yfirgripsmikla þekkingu á bílamarkaðinum og aflað góðra tengsla þar. Ég tók svo nokkur ár þarna á milli þar sem ég starfaði hjá Prentsmiðjunni Odda og sinnti viðskipta- og verkefnastjórnun og fékk þar góða og gagnlega reynslu sem nýtist með ýmsum hætti. En í dag eru klárlega mjög spennandi tímar hjá Bílgreinasambandinu og félagsmönnum þess, og ég hlakka mikið til að leggja mitt af mörkum til að styðja við áframhaldandi uppgang og þróun á þeim vettvangi í framtíðinni."

„Það er kærkomið að fá Óðinn til liðs við okkur hér hjá Bílgreinasambandinu. Fjölmörg stór verkefni eru í vinnslu s.s. menntamál, gæðamál bílgreinarinnar, vinna með nefndum Bílgreinasambandsins ásamt verkefnum með hinu opinbera og það er okkur mikill styrkur að fá liðsauka. Bílgreinin er á hraðri þróun og er það okkar verkefni að styðja þessa þróun og tryggja að hún gangi sem best fyrir sig hér á landi." segir María Jóna Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins.

Óðinn er með MS gráðu í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík og BS gráðu í viðskiptafræði, ásamt því að hafa lokið ýmsum námskeiðum í endurmenntun og víðar.