Samkeppniseftirlitið hefur í dag ógilt samruna sem áformaður var með kaupum Tempru ehf. á öllu hlutafé í Plastgerð Suðurnesja. Fyrirtækin starfa bæði í framleiðslu og sölu á frauðlastkössum og frauðplasteinangrun. Frauðsplastkassar eru einkum nýttir við flutning á ferskum fiski en frauðplasteinangrun er aðallega notuð við húsbyggingar að því er kemur fram í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.

Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins er sú að samruninn hefði það í för með sér að til yrði mjög öflugt fyrirtæki með nánast einokunarstöðu á markaði fyrir sölu og framleiðslu  á frauðplastkössum annars vegar og markaði fyrir framleiðslu og sölu á frauðplasteinangrun hins vegar. Enn fremur myndi samruninn leiða til talsverðrar breytingar á markaðsgerðinni þar sem mikilvægur keppinautur myndi hverfa af markaði og fæli því samruninn alvarlega röskun á samkeppni og væri til þess fallinn að valda viðskiptavinum tjóni að mati Samkeppniseftirlitsins.

Samrunaaðilar lögðu fram tillögur að skilyrðum til þess að vinna gegn samkeppnishömlum sem stafað gætu af samrunanum. Það er mat Samkeppniseftirlitsins að þessar tillögur myndu ekki duga til að koma í veg fyrir samkeppnishamlandi áhrif samrunans. Því telur eftirlitið óhjákvæmilegt að ógilda samrunann.