Matvælastofnun hefur síðastliðin ár varað við neyslu kræklings úr Hvalfirði. Ástæða viðvörunarinnar var sú að DSP þörungaeitur í skelkjöti hefur greinst yfir viðmiðunarmörkum og eitraður þörungur sem getur valdið DSP eitrun í skelfisk hefur verið á sveimi í firðinum síðast liðið ár.
Tekin voru sýni í byrjun nóvember af sjó úr Hvalfirði og krækling sem sem safnað var við Fossá. Ekki varð vart við eitraða þörunga í sjónum. Þörungaeitur greindist en það var undir þeim viðmiðunarmörkum sem sett hafa verið.
Fólk getur því haldið í fjöru og týnt krækling og gætt sér á uppskerunni, að því er segir í frétt frá Matvælastofnun.