Oktavía Hrund Jónsdóttir var kjörin stjórnarformaður Pírata í Evrópu á fundi sem haldinn var í Prag um helgina að því er kemur fram í tilkynningu frá Pírötum en hún tekur við formennskunni af Smára McCarthy. Oktavía er varaþingmaður Pírata í Suðvesturkjördæmi og alþjóðafulltrúi framkvæmdaráðs Pírata á Íslandi. Hún er með MA gráðu í alþjóðlegri þróunarfræði og samskiptum frá Hróarskelduháskóla. Oktavía situr í stjórn Freedom of the Press Foundation og síðstu ár hefur hún starfað við baráttu fyrir tjáningarfrelsi, friðhelgi einkalífsins og almennum mannréttindum á vegum alþjóðlegra stofnana víða um heim, til að mynda í Berlín, Kaupmannahöfn, Washington DC og á stríðshrjáðum svæðum í þróunarlöndunum.

Píratar í Evrópu (European Pirate Party - PPEU) samanstanda af Píratahreyfingum í 20 löndum, þar á meðal Svíþjóð, Tékklandi, Belgíu og Póllandi,  auk Félags ungra Pírata í Evrópu.

"Ég er stolt og klökk yfir því að hafa fengið tækifæri til að taka við sem formaður Pírata í Evrópu. Ég hlakka til að sýna forystu og leiða okkur saman inn í framtíðina okkar, framtíð Evrópu," er haft eftir Oktavíu í tilkynningu. "Píratahreyfingin er alþjóðleg hreyfing. Hún er hvorki til hægri né vinstri heldur áfram og inn í framtíðina. Að Íslendingar hafi nú fengið tvö sæti í stjórninni er til marks um það traust sem okkur er sýnt. Þessu tökum við alvarlega og af auðmýkt," segir hún.

Auk Oktavíu var Hrafndís Bára Einarsdóttir kjörin í stjórn Pírata í Evrópu um helgina. Hrafndís Bára var í 3. sæti hjá Pírötum í Norðausturkjördæmi fyrir síðustu alþingiskosningar. Hún er menntaður viðburðastjóri og starfar við Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar.