Ólafur Ólafsson, stærsti eigandi Samskipa Holding B.V., sagði sig úr stjórn félagsins í febrúar síðastliðnum. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins fyrir síð­asta ár. Róbert Aron Róbertsson tók sæti Ólafs, en Ólafur afplánar nú fangelsisdóm.

Róbert hefur lengi starfað fyrir félög í eigu Ólafs, meðal annars sem stjórnarformaður Alta Food Holding. Hann er einnig framkvæmdastjóri ráðgjafarfyrirtækisins Kot Consulting sem Ólafur stofnaði á dögunum.