Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur í dag, að höfðu samráði við fulltrúa allra þingflokka í allsherjarnefnd Alþingis, falið Ólafi Þór Haukssyni, sýslumanni á Akranesi, að gegna embætti sérstaks saksóknara.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Framlengdur umsóknarfrestur um embættið rann út í gær, 12. janúar 2009, og barst ein önnur umsókn. Sá umsækjandi fullnægði ekki þeim skilyrðum sem gerð voru til starfsins og fram komu í auglýsingu um það, að því er segir í tilkynningunni.

„Ólafur mun veita forstöðu rannsóknar- og saksóknaraembætti skv. lögum nr. 135/2008 sem rannsaka á grun um refsiverða háttsemi í aðdraganda, tengslum við og kjölfar bankahrunsins, hvort sem það tengist starfsemi fjármálafyrirtækja, annarra lögaðila eða einstaklinga, og eftir atvikum fylgja rannsókn eftir með saksókn," segir í tilkynningunni.

Ólafur tekur við embættinu frá og með 1. febrúar 2009 og gildir sú skipan uns embættið verður lagt niður eða það sameinað annarri ríkisstofnun, sbr. ákvæði laga um embætti sérstaks saksóknara, en þá mun hann taka við embætti sýslumanns á Akranesi að nýju.