Ólafur Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs sem sameinaður var nýlega úr Sameinaða lífeyrissjóðnum og Stafa lífeyrissjóðs.

Ólafur hefur verið frá stofnun Stafa lífeyrissjóðs árið 2006 framkvæmdastjóri þess, en áður var hann framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins Lífiðnar og verðbréfafyrirtækisins Virðingar.

Engum starfsmanni sagt upp

„Ólafur er 46 ára, alinn upp á Ísafirði þar sem hann lauk stúdentsprófi 1990. Árið 1996 brautskráðist hann með meistaragráðu í erfðafræði frá Salzburgarháskóla og prófi í viðskipta- og rekstrarfræði frá Háskóla Íslands 2000. Þá hefur hann lokið prófi sem löggiltur verðbréfamiðlari,“ segir í fréttatilkynningu frá sjóðnum.

„Nýr framkvæmdastjóri mun nú ráða starfsfólk nýja lífeyrissjóðsins og finna sjóðnum húsnæði til að starfa í þegar fjármálaráðuneytið staðfestir sameininguna. Gert er ráð fyrir að samlegðaráhrif skili sér á ýmsan hátt í rekstri sameinaðs lífeyrissjóðs þegar til lengri tíma er litið. Engum starfsmanni lífeyrissjóðanna tveggja verður sagt upp vegna sameiningarinnar.“