Ólafur Ragnar Grímsson mælist með yfir helmings fylgi landsmanna í nýjust skoðanakönnun MMR, eða 52,6%. Könnunin var framkvæmd á dögunum 22. til 26. apríl og kannaði fylgi þeirra einstaklinga sem höfðu tilkynnt forsetaframboð.  Andri Snær Magnason mældist með næst mest fylgi eða 29,4% og Halla Tómasdóttir með 8,8%. Fylgi annarra frambjóðenda mældist undir 2%.

Könnunin sýnir að Ólafur Ragnar hefur hlutfallslega meira fylgi á landsbyggðinni, á meðan Andri Snær Magnason hefur hærra fylgi á höfuðborgarsvæðinu. Fylgi Höllu Tómasdóttur mældist einnig meira á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni.

Andri Snær hefur hefur hlutfallslega meira fylgi meðal þeirra sem eru tekjuhærri og með aukna menntun, en fólk í sérfræðistörfum er líklegast til að kjósa Andra samkvæmt könnuninni.

Ólafur Ragnar Grímsson mælist hinsvegar með hlutfallslega meira fylgi meðal þeirra sem hafa minni menntun og lægri tekjur. Halla Tómasdóttir hefur töluvert meira fylgi meðal kvenna auk þess sem stjórnendur og æðstu embættismenn eru hlutfallslega líklegri til að vera fylgjendur Höllu í samanburði við fólk í annars konar störfum.

Áhugasamir geta kynnt sér niðurstöður könnunarinnar hér.