Fiskeldi Austfjarða hf. hefur ráðið Ólöfu Rún Stefánsdóttur í starf fóðrara hjá fyrirtækinu og fer því öll fóðrun nú fram frá fóðurstöðinni á Djúpavogi og fóðurskipum við eldisstöðvarnar. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Á ábyrgðarsviði Ólafar er, líkt og starfstitillinn gefur til kynna, að sjá til þess að fiskurinn sé rétt fóðraður og halda utan um skráningar tengdar fóðrununni. Ólöf sem er útskrifuð frá Háskólanum á Bifröst hefur frá árinu 2016 starfað við fiskvinnslu hjá Búlandstindi ehf. en fyrirtækið sér um alla vinnslu á laxi frá Fiskeldi Austfjarða. Ólöf hefur lengi haft mikinn áhuga á fiskiðnaði og segist spennt fyrir því að vinna í fiskeldi. „Áður en ég hóf störf leit ég greinina jákvæðum augum og það er óhætt að fullyrða að mér líst enn betur á fiskeldið eftir að ég fór að kynna mér það betur".

Til stóð að fóðruninni yrði stýrt frá Noregi en hætt var við þau áform og sett upp stjórnstöð á Djúpavogi. Guðmundur Gíslason, framkvæmdastjóri Fiskeldis Austfjarða, segir mikinn ávinning fólginn í því að þessi leið var farin og má þar meðal annars nefna styttri boðleiðir og nánara samstarf fólksins á svæðinu. „En það er ekki nóg að setja upp stjórnstöðina því það verður að vera hæfur einstaklingur við stjórnvölin. Við erum því virkilega ánægð að fá Ólöfu til liðs við okkur," segir Guðmundur.