Ómar Svavarsson, framkvæmdastjóri sölu og ráðgjafar, hefur sagt starfi sínu lausu hjá Sjóva en honum hefur boðist starfstilboð á öðrum vettvangi. Ómar tók við starfi framkvæmdastjóra hjá Sjóvá í janúar 2015 að því er kemur fram í tilkynningu Sjóvá til Kauphallarinnar.

Ómar starfaði sem framkvæmdastjóri sölu og þjónustusviðs Vodafone frá árinu 2005 og sem forstjóri frá 2009, en hann starfaði hjá Sjóvá frá 1995 til 2005. Ómar mun láta af störfum á næstu dögum. Málefni  sölu og ráðgjafar munu tímabundið heyra undir Hermann Björnsson, forstjóra Sjóvá.