Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík var opnuð í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag, 16. janúar kl. 8 en miðstöðin hefur verið starfrækt í Aðalstræti 2 frá árinu 2002. Flutningur Upplýsingamiðstöðvarinnar er liður í því að nýta húsnæði í eigu borgarinnar enn betur og auka þjónustu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Miðstöðin er á jarðhæð Ráðhússins þar sem gönguás liggur í gegnum húsið en hann er hugsaður sem hluti af göngustígakerfi borgarinnar, þar sem almenningur getur komið saman og fylgst með því sem um er að vera í húsinu hverju sinni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Höfuðborgarstöðu.

Reykjavíkurborg og Höfuðborgarstofa reka Upplýsingamiðstöð ferðamanna með styrk frá Ferðamálastofu og nú í samstarfi við fyrirtækið Guide to Iceland.

28 prósentustiga fjölgun á árinu

„Miðstöðin er sá staður í Reykjavík þar sem flestir erlendir ferðamenn hafa viðkomu og margir ákveða í framhaldinu hvernig Íslandsheimsókninni verði best varið. Á síðasta ári fengu 475.000 ferðamenn aðstoð og þjónustu á Upplýsingamiðstöðinni í Aðalstræti sem var 28% fjölgun frá árinu áður og hafa þeir aldrei verið fleiri,“ segir í tilkynningunni.

Áshildur Bragadóttir forstöðukona Höfuðborgarstofu segir eftirfarandi um opnunina:

„Það er virkilega ánægjulegt að opna Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Ráðhúsi Reykjavíkur sem er eitt sterkasta kennileiti í borginni og einn af þeim stöðum sem ferðamenn heimsækja meðan á dvöl þeirra stendur. Þá er stórt Íslandskort í Tjarnarsalnum sem nýtur mikilla vinsælda meðal ferðamanna. Þessi fallega bygging er í hjarta miðborgarinnar og mun ný staðsetning upplýsingamiðstöðvarinnar efla svæðið hér í kring enn frekar. Það eru spennandi tímar framundan í ferðaþjónustu sem verður gaman að takast á við með fyrirtækinu Guide to Iceland.“