ORF líftækni hefur ráðið Claes Nilsson til starfa sem framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar. Claes er sænskur en hefur starfað í Bandaríkjunum undanfarinn áratug. Claes hefur viðamikla reynslu af uppbyggingu þekkingarfyrirtækja starfaði nú síðast sem framkvæmdastjóri vöruþróunar hjá tæknifyrirtækinu FriendSend.

Samhliða störfum sínum hefur hann sinnt hlutverki viðskiptafulltrúa fyrir efnahagsþróunarstofu Bandaríkjanna. Claes er með gráðu í alþjóðaviðskiptum frá University of Maryland í Collage Park í Bandaríkjunum. Undanfarin ár hefur ORF líftækni vaxið hratt, einkum og sér í lagi í gegnum BIOEFFECT vörulínu félagsins segir í fréttatilkynningu.

Meginhlutverk Claes felst í að vinna að útvíkkun á starfsemi ORF líftækni með frekari hagnýtingu á próteinframleiðslukerfi og öðrum þekkingargrunni fyrirtækisins. Þá mun Claes jafnframt leiða ýmis verkefni sem miða að framþróun á innviðum fyrirtækisins. „Það er okkur mikið ánægjuefni að bæta Claes við ört vaxandi hóp starfsmanna innan ORF líftækni” segir Frosti Ólafsson, forstjóri félagsins.

„Það er til marks um þau áhugaverðu verkefni sem við erum að fást við, að í starfið fáist erlendur aðili með svo viðamikla stjórnendareynslu innan alþjóðlegra þekkingarfyrirtækja. Til að standa undir örum vexti félagsins er stefnt að fjölgun tekjustoða og frekari eflingu á innviðum fyrirtæksins. Við höfum trú á því að Claes muni reynast okkur dýrmætur liðskraftur á þeirri vegferð.”

Um Orf Líftækni

ORF Líftækni er leiðandi fyrirtæki á heimsvísu í plöntulíftækni segir jafnframt í tilkynningunni. Fyrirtækið framleiðir og selur sérvirk prótein sem notuð eru sem innihaldsefni í BIOEFFECT húðvörurnar, við læknisfræðilegar rannsóknir og í önnur þróunarverkefni fyrirtækisins.

ORF hefur þróað tækni til að framleiða slík prótein í byggi, en aðferðin er afrakstur tveggja áratuga vísinda- og þróunarstarfs. BIOEFFECT vörurnar hafa fengið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga fyrir virkni og gæði og eru núna seldar í 28 löndum. Hjá ORF Líftækni og dótturfyrirtækjum þess starfa ríflega 50 starfsmenn.