Mikið var um að vera í Kauphöllinni í dag en alls hækkuðu 13 félög í dag þar af 6 yfir 2% í viðskiptum dagsins. Heildarvelta á Aðalmarkaði hlutabréfaviðskipta nam 2,7 milljörðum króna.

Verð á hlutabréfum í Origo hækkaði mest í Kauphöllinni í dag eða um 5,37% í 39 milljóna króna viðskiptum. Næstmest hækkaði TM eða um 3,18% í 120 milljóna króna viðskiptum.

Fjögur félög lækkuðu í viðskiptum dagsins. Mest lækkaði HB Grandi sem lækkaði um 2,44%.

Íslenska úrvalsvísitalan hækkaði um 0,96% í viðskiptum dagsins.