Upplýsingatæknifyrirtækið Origo hagnaðist um 433 milljónir á árinu 2017, sem er 50 milljónum króna meira en hagnaður samstæðunnar árið á undan. Er það aukning hagnaðar sem nemur 13% frá fyrra ári. Origo varð til við sameiningu Nýherja við dótturfélögin TM Software og Applicon í byrjun árs. Hægt er að nálgast ársuppgjör félagsins hér .

Hins vegar dróst hagnaður fjórða ársfjórðungs saman um 13 milljónir, en hann fór úr 180 milljónum árið 2016 í 167 milljónir síðustu þrjá mánuði síðasta árs. Sem er minnkun um 7,2% frá fyrra ári.

Tekjur minnkuðu um 289 milljónir

Nam sala á vörum og þjónustu fyrirtækisins 3.944 milljónum króna á ársfjórðungnum, sem er 6,8% tekjusamdráttur frá sama tíma fyrir ári þegar salan nam 4.233 milljónum króna. Drógust tekjurnar milli ársfjórðunga hvors árs saman um 289 milljónir króna. Allt árið nam salan 15.064 milljónum króna, sem er 1,9% tekjuvöxtur frá árinu 2016, þegar hún nam 14.788 milljónum króna.

Framlegðin á fjórða ársfjórðungi nam 1.044 milljónum króna, eða 26,5% af tekjum en á fjórða ársfjórðungi ársins 2016 nam framlegðin 1.108 milljónum króna sem var 26,2% af tekjum. Ef horft er á árin í heildina minnkaði framlegðin úr 3.784 milljónum króna í 3.783 milljónir króna eða um 1 milljón milli ára. Framlegðarhlutfallið fór hins vegar úr 25,6% í 25,1%.

EBITDA félagsins nam 246 milljónum króna, eða 6,2% af tekjum þess á fjórða ársfjórðungi, en var 335 milljónir króna, og 7,9% á sama tíma árið 2016. EBITDA félagsins fyrir árin í heildina fór úr 1.021 milljónum króna og 6,9% af tekjum í 928 milljónir króna í 6,2% af tekjum. Eiginfjárhlutfallið jókst hins vegar milli ára úr 33,7% í lok árs 2016 í 41,6% í lok árs 2017.

Tekjuvöxtur undir væntingum

Finnur Oddsson forstjóri Orgi segir að 2% tekjuvöxt fyrirtækisins milli ára hafa verið nokkuð undir væntingum. „Reksturinn var um margt ögrandi,“ segir Finnur í fréttatilkynningu.

„Þennan dræma tekjuvöxt má annars vegar rekja til minni búnaðarsölu en á síðasta ári og hins vegar til styrkingar íslensku krónunnar á milli ára, þar sem stór hluti tekna félagsins er annaðhvort í erlendri mynt eða tengdur verði þeirra. Á gjaldahliðinni munar mestu um hækkun launakostnaðar vegna kjarasamningsbundinna hækkana og launaskriðs. Samanlagt skýrir þetta samdrátt í rekstrarhagnaði á milli ára. Þess ber þó að geta að félagið hefur að hluta til varist gengisáhættu með áhættuvörnum sem styrkja niðurstöðu ársuppgjörs að þessu sinni.

Tekjur á fjórða ársfjórðungi voru undir áætlun og drógust saman frá árinu á undan. Þar munar um að umfangsmiklar búnaðarsölur til stærri viðskiptavina voru færri en á metfjórðungi árið áður. Ágæt tekjuaukning var hins vegar á flestum öðrum sviðum, einkum í sölu á eigin hugbúnaðarlausnum. Það hefur verið gaman að sjá viðtökur við Kjarna, launa- og mannauðskerfi, þar sem áskriftartekjur hafa tvöfaldast á milli ára og gæðastýringarlausninni CCQ, sem nýtt er við innleiðingu gæðakerfa og GDPR.

Mikil eftirspurn er eftir öryggislausnum á borð við QRadar og Guardium sem fyrirtæki nota til úttektar  og vöktunar á eigin kerfum en einnig sem hluta af innleiðingu GDPR. Sala á PC búnaði er stöðug og verulegur vöxtur er í sölu á hljóð- og myndlausnum. Það er svo sérstaklega ánægjulegt að bjóða velkominn fjölda nýrra viðskiptavina sem hafa úthýst UT-rekstri til okkar á síðustu mánuðum.

Rekstur Tempo gekk mjög vel á árinu, einkum á síðari hluta þess. Eftir nokkuð ögrandi breytingarverkefni á fyrri helmingi árs hafa viðskiptavinir tekið vel í nýja útgáfu af Tempo Cloud for Jira, sem endurspeglast í sterkum tekjuvexti á síðasta ársfjórðungi og 38% aukningu tekna yfir árið í heild. Tempo Timesheets er vinsælasta varan á markaðstorgi Atlassian, en Planner og Budget vörurnar eru einnig á topp sölulistum.

Með umbótum okkar á Tempo á síðasta ári er lagður grunnur að samþættingu Tempo við aðrar skýjaþjónustur til viðbótar við JIRA frá Atlassian. Tempo fyrir Slack kom út í lok árs og var vel tekið og við horfum nú ákveðið til vaxtartækifæra, bæði innan og utan Atlassian.

Söluferli á Tempo hófst í október síðastliðnum þar sem fjárfestingarbankinn AGC Partners er okkur til ráðgjafar í ferlinu. Markmiðið er að selja verulegan eignarhlut til aðila sem þekkir vel til uppbyggingar alþjóðlegra hugbúnaðarfyrirtækja og getur stutt við frekari tekjuvöxt og verðmætasköpun næstu 3-5 árin. Ferlið er á áætlun og miðað er við að því ljúki á fyrri hluta árs.

Á síðasta ári og í upphafi 2018 hefur sérstök áhersla verið lögð á að treysta stoðir samstæðunnar til framtíðar. Þetta höfum við m.a. gert með töluverðri fjárfestingu í lausnaþróun auk þess sem við höfum fest kaup á nýjum lausnum og þekkingu sem fellur vel að lausnaframboði okkar og þörfum viðskiptavina.

Þarna má nefna bílaleigukerfið Caren, rafrænu innkaupalausnina Timian og frábæran hóp frá AGR sem bætir Dynamics NAV í annars öflugt mengi viðskiptalausna. Sameining Nýherja, Applicon og TM Software undir nýju nafni Origo, gefur okkur svo byr í seglin, bæði vegna hagræðis og öflugra þjónustuframboðs sem nýtt fyrirtæki getur útvegað viðskiptavinum.

Þegar horft er til krefjandi rekstraraðstæðna að undanförnu, þá er niðurstaða ársins viðunandi. Eins og komið hefur fram þá hefur verið unnið að því að draga úr kostnaði, annars vegar með aðhaldi í mönnun og launakostnaði og hins vegar með hagræðingu sem hlýst af sameiningu undir nafninu Origo.

Þetta verður áfram verkefni stjórnenda í rekstri félagsins en staðan á vinnumarkaði er í senn mikið umhugsunar- og áhyggjuefni. Þó innlendar kostnaðarhækkanir verði áfram ögrandi verkefni fyrir stjórnendur, þá horfum við ekki síður til uppbyggingar á starfsemi og frekari eflingar á tekjugrunni til framtíðar.“