Þorsteinn Jónsson, oft kenndur við Kók á Íslandi og Steinþór Gunnarsson, fyrrverandi yfirmaður verðbréfadeildar Landsbankans höfðu milligöngu um að útvega Sjálfstæðisflokknum styrki annars vegar frá FL Group og hins vegar Landsbankanum í lok árs 2006.

Þorsteinn, sem þá var hluthafi og sat í stjórn FL Group, hafði milligöngu um styrkinn frá FL Group en Steinþór hafði milligöngu um styrkinn frá Landsbankanum þar sem hann  starfaði þá.

Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu frá þeim Þorsteini og Steinþóri en þeir segjast hafa safnað styrkjunum eftir að Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður hafði haft samband við þá og upplýst að fjárhagsstaða flokksins væri mjög bágborin.

Í yfirlýsingunni kemur fram að Guðlaugur hafi ekki haft frekari afskipti af málinu.

Þeir segja fyrirtækin sjálf hafa ákveðið upphæð styrkjanna og það hafi verið á ábyrgð flokksins að veita þeim viðtöku.

Yfirlýsingin frá Steinþóri og Þorsteini er svohljóðandi :

„Við undirritaðir áttum þátt í því að safna fé fyrir Sjálfstæðisflokkinn í desember 2006. Aðkoma okkar að söfnuninni hófst þegar Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður, hafði samband við okkur og upplýsti að fjárhagsstaða flokksins væri mjög bágborin. Hann hvatti okkur til að leggja flokknum lið og safna fjármunum fyrir hann, en hafði ekki frekari afskipti af málinu eftir það.

Við höfum starfað innan Sjálfstæðisflokksins til ára og áratuga og þótti okkur því sjálfsagt og eðlilegt að verða við kallinu um að leggja flokknum lið. Við höfðum því samband við fjölda fyrirtækja í leit að styrkjum, með mismunandi árangri.

Undirritaður, Steinþór Gunnarsson, hafði frumkvæði að því að óska eftir styrk frá Landsbanka Íslands og undirritaður, Þorsteinn Jónsson, hafði frumkvæði að því að óska eftir styrk frá FL Group. Það var að sjálfsögðu á forræði þessara fyrirtækja að ákveða endanlega hversu háan styrk þau vildu veita.

Þessir styrkir, sem og aðrir sem við öfluðum, voru síðan greiddir inn á reikning Sjálfstæðisflokksins. Það var á ábyrgð flokksins að veita þessum fjármunum viðtöku, enda hefur það komið skýrt fram í yfirlýsingu fyrrverandi formanns hans.

Ýmsir aðilar hafa reynt að gera þessa atburðarás tortryggilega. Við hörmum það. Við vorum einungis að leggja Sjálfstæðisflokknum lið í miklum fjárhagserfiðleikum og lögðum okkur alla fram í þeim tilgangi.

Með yfirlýsingu þessari höfum við gert grein fyrir okkar þætti í þessu máli og munum ekki tjá okkur frekar um það.

Reykjavík, 11. apríl 2009,

Steinþór Gunnarsson

Þorsteinn Jónsson“