Stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum lýsir yfir miklum vonbrigðum með þær hækkanir sem hafa orðið á raforku frá 2013 en sú hækkun er langt umfram hækkun á vísitölu að sögn samtakanna. „Svo virðist sem sölufyrirtækin hafi nýtt sér þá staðreynd að hækkun hefur orðið á niðurgreiðslum til íbúa á köldum svæðum og hækkað gjaldskrár sínar óhóflega sem kemur harkalega niður á íbúum sem búa á þeim svæðum,“ er meðal þess sem kemur fram í fréttatilkynningu frá Stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum.

Samtökin berjast fyrir því að jafna húshitunarkostnað íbúa sem búa á köldum svæðum. Í tilkynningu samtakanna segir að raforkuverð hafi hækkað um 12,6 til 22,63 prósentustig frá janúar 2013. Á sama tíma hefur vísitala neysluverðs einungis hækkað um 8,86%.

„Stjórn samtakanna telur þessar hækkanir algjörlega úr takti við eðlilegar hækkanir og mótmælir þeim harðlega. Jafnframt skora Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum á ráðherra orkumála að skipa starfshóp sem fari yfir málin og komi með tillögur til ráðherra hvernig hægt sé að ná þeim markmiðum að jafna húshitunarkostnað á landinu óháð orkugjafa,“ er tekið fram að lokum.