Stjórn Klappa Grænna Lausna hf. (Klappa) hefur ákveðið að óska eftir skráningu hlutabréfa í félaginu á Nasdaq First North markaði í Nasdaq kauphöllinni á Íslandi (Kauphöllin) nú í haust. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

Skráningin er háð skilyrðum og samþykki Kauphallarinnar um skráningu bréfa á Nasdaq First North en ekki verður efnt til útboðs á hlutabréfum eða skuldabréfum í aðdraganda skráningarinnar. Arion Banki mun hafa umsjón með skráningu skráningu Klappa á Nasdaq First North markaðinn í Kauphöllinni.

Hugbúnaðarlausnir Klappa eru eitt af allra fyrstu upplýsingakerfum sinnar tegundar í heiminum á sviði umhverfismála og er þeim ætlað að styðja fyrirtæki, sveitarfélög og ríki við að byggja upp öfluga innviði til að takast á við þær áskoranir sem framundan eru á því sviði. Traust og skilvirk aðferðafræði hugbúnaðarins mætir þörfum notenda búnaðarins við að safna saman, samkeyra, greina og miðla áreiðanlegum umhverfisupplýsingum. Hugbúnaðurinn mætir alþjóðlegri umhverfislöggjöf varðandi flesta þætti umhverfismála og einnig mikilvægum þáttum íslenskra og evrópskra umhverfislaga hvað varðar söfnun og miðlun á upplýsingum um orkunotkun og upplýsingum um meðferð á úrgangi, að því er fram kemur í tilkynningunni.

„Klappir byggja á hugviti starfsfólks sem hefur sérþekkingu og langa reynslu af umhverfismálum skipulagsheilda, flotastýringu bifreiða og skipa, hugbúnaðarþróun og alþjóðlegri starfsemi,“ segir Dr. Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri félagsins í tilkynningunni.

„Við lítum svo á að með skráningu fyrirtækisins á Nasdaq First North markaðinn í Kauphöllinni sé stigið mikilvægt skref í framtíðarundirbúningi félagsins. Við teljum að með skráningunni skapist meiri sýnileiki og umgjörð sem komi fyrirtækinu til góða þegar fram í sækir svo sem almenn og samræmd upplýsingagjöf til hluthafa, aukinn möguleiki fyrir nýja fjárfesta til koma inn í hluthafahópinn og fara út úr fjárfestingunni þegar þeim hentar. Þá auðveldar skráningin fjármögnun á stórum verkefnum ef aðstæður kalla á ýmist með útboði á nýju hlutafé eða útgáfu skuldabréfa. Með skráningunni viljum við jafnframt gefa þeim fjárfestum og einstaklingum, sem hafa trú á að með grænum innviðum og öflugri upplýsingatækni sé hægt að minnka verulega losun gróðurhúsalofttegunda, tækifæri til að vera þátttakendur í þróun grænna hugbúnaðarlausna og innleiðingu þeirra í gegnum Klappir.“