Bjarni Ólafsson AK kom til löndunar í Neskaupstað í morgun með tæplega 900 tonn af kolmunna.

Frá þessu er greint á heimasíðu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað.

Gísli Runólfsson skipstjóri segir þar að það komi mönnum á óvart að þarna skuli veiðast kolmunni á þessum árstíma.

„Þarna virðist vera töluvert af fiski og þarna er um ágætan fisk að ræða. Ástæðan fyrir því að við komum inn er sú að við rifum trollið og þurftum að fá viðgert. Við förum aftur út í kvöld þegar búið verður að landa og gera við. Aflinn fékkst í tveimur holum og fiskurinn er tekinn ofarlega eða á 60-80 föðmum. Yfir nóttina hverfur fiskurinn alveg og þá er látið reka þannig að það er einungis dregið yfir daginn. Það er frábært að fá svona verkefni að lokinni makríl- og síldarvertíð. Vonandi verður bara framhald á þessari veiði,“ segir Gísli í fréttinni.