Páll Guðbrandsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra hjá Hype auglýsingastofu. Páll gengur jafnframt í eigendahóp fyrirtækisins. Sævar Már Björnsson sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra tekur við stöðu fjármálastjóra. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Páll hefur síðastliðin fimm og hálft ár starfað hjá H:N Markaðssamskiptum sem viðskiptatengill og yfirmaður birtingardeildar. Hann starfaði einnig í 5 ár sem sölu- og markaðsstjóri hjá Skólavefnum. Í starfi sínu hjá H:N Markaðssamskiptum stýrði Páll vinnu fyrir fjölbreytta flóru kúnna sem skilaði verðlaunum, Lúðrum, á Ímark hátíðinni meðal annars fyrir Lambakjöt, Atlantsolíu og Kviku. Hann var einnig yfir birtingadeild H:N og hefur setið í fjölmiðlanefnd SÍA.

Páll segir að það séu gríðarlega spennandi tímar framundan hjá Hype: „Vöxturinn síðustu ár hefur verið mikill og stöðugur og við sjáum ekki fyrir endann á þeirri þróun. Hype er auglýsingastofa sem sprettur upp úr þessum nýja stafræna veruleika í markaðsmálunum. Við sjáum um öll verkefni frá hugmyndavinnu og hönnun yfir í markaðs- og netráðgjöf, birtingar og allt þar á milli.“ segir Páll.

„Hype hefur getið sér gott orð við vefsíðugerð og það er að reynast okkur afskaplega vel að búa að þeirri þekkingu samhliða almennri auglýsingastofuvinnu. Markmið okkar er að vera fjölhæfur og kvikur samstarfsaðili sem hefur sveigjanleikann og getuna sem þarf til að fylgja hinni hröðu þróun nútíma markaðsstarfs og bregðast rétt við.“ Hann bendir á að það sé mikil eftirspurn eftir fjölhæfni í fari auglýsingastofa í dag.

Sævar Már segir að með þessum breytingum sé Hype að styðja við áframhaldandi vöxt hjá stofunni. „Við erum virkilega ánægð með að fá Pál til liðs við okkur. Við höfum stækkað jafnt og þétt og nú þegar Páll kemur inn með sína reynslu getum við boðið okkar viðskiptavinum enn betri og fjölbreyttari þjónustu á sama tíma og við bætum við okkur nýjum verkefnum.“ segir Sævar.

Hype er fimm ára gömul auglýsingastofa með stafrænan fókus. Hype er fjölhæf stofa sem sameinar afburða getu í hefðbundnum markaðsaðgerðum við þekkingu á nýmiðlun og stafrænum lausnum. Hjá fyrirtækinu starfa nú fimm manns og er Hype með höfuðstöðvar í Hlíðarsmára 2.