Pawel Bartoszek stærðfræðingur er genginn til liðs við stjórnmálaflokkinn Viðreisn og hefur lýst yfir áhuga á sæti á framboðslista flokksins í Reykjavík. Hann greindi frá þessu á Facebook síðu sinni fyrir skömmu.

Í samtali við Viðskiptablaðið segist hann búast við því að listi flokksins muni vera tilbúinn um næstu mánaðamót. „Ég hef lýst því yfir við uppstillingarnefnd Viðreisnar í Reykjavík að ég hafi áhuga á að taka sæti á listanum og ég er sæmilega vongóður um undirtektir,“ segir hann.

Fyrr í dag sagði Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, að hann væri að íhuga framboð fyrir Viðreisn.