Pósturinn hyggst fækka dreifingardögum bréfapósts í þéttbýli frá og með 1. febrúar nk. en bréfum hefur fækkað mjög á undanförnum árum eða um 52% frá árinu 2007 og heil 7% það sem af er þessu ári að því er kemur fram í tilkynningu frá Íslandspósti.  Þá segir að ennfremur að pósturinn hafi heimild til þess að fækka dreifingardögum ef eftirspurn almennings og fyrirtækja á þjónustunni hafi minnkað verulega.

Breytingin mun hafa í för með sér að svokallaður A-póstur leggst af en honum var dreift daglega og tryggði að bréf yrðu borin út til viðtakanda degi eftir að þau voru send. Nú þegar eru um 70% af öllum póstsendingum B-póstur en honum er dreift innan þriggja daga. Áfram verður þó hægt að senda bréf sem dreift er næsta dag en þau heyra þáundir vöruflokkinn „rekjanleg bréf“.

Pökkum verður áfram dreift alla virka daga en vöxtur hefur verið í pakkasendingum samhliða aukinni netverslun en Pósturinn hyggst efla enn frekar þjónustu sína á því sviði. Pósturinn hóf nýlega laugardagsdreifingu á pakkasendingum og dreifir pökkum daglega.

Ljóst er að áhersla Póstsins hefur verið að færast frá bréfum og yfir í pakka en í tilkynningu frá Póstinum er haft eftir Brynjari Smára Rúnarssyni að bréfum hafi fækkað um meira en helming á síðastliðnum árum þrátt fyrir fólksfjölgun.

„Bréfum hefur fækkað um meira en helming á liðnum áratug þrátt fyrir fólksfjölgun á sama tíma, en því fylgir aukinn kostnaður á hvert sent bréf. Þessi þróun hefur lengi verið fyrirséð, enda bjóðast nú margir hraðvirkari og einfaldari samskiptamátar en bréfasendingar.  Það er skiljanlegt að einhverjir muni sakna þess að fá ekki lengur daglega heimsókn frá bréfberanum, en þjónusta Póstsins þarf, rétt eins og þjónusta annarra fyrirtækja, að breytast í takt við nýja tíma. Pósturinn var bréfafyrirtæki sem bauð einnig pakkasendingar en er í dag pakkafyrirtæki sem býður líka upp á bréfasendingar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem við gerum breytingar sem þessar enda hefur fyrirtækið þurft að bregðast við nýrri samskiptatækni og hefur breytt starfseminni jafnt og þétt í samræmi við breyttar þarfir og óskir viðskiptavina. Þörfin fyrir bréfadreifingu hefur minnkað mikið með nýjum boðleiðum og sú þróun mun halda áfram. Um leið vill fólk fá pakkasendingar til sín svo hratt sem mögulegt er og leggjum við áherslu á að bregðast fljótt og vel við þeim óskum um þjónustu Póstsins,“ segir Brynjar Smári.