Stjórnir Pressunnar ehf og Birtíngs ehf hafa komist að samkomulagi um kaup Pressunnar á öllum hlutum í Birtingi útgáfufélagi ehf. af SMD ehf., Prospectus ehf. og Karli Steinari Óskarssyni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Birtíngur ehf. verður því sjálfstætt dótturfélag Pressunar ehf. og heldur áfram núverandi starfsemi í óbreyttri mynd. Markmið samrunans er hagræðing í rekstri félaganna og samþætting skylds reksturs.

„Birtíngur er helsta tímaritaútgáfa landsins. Meðal tímarita útgáfunnar eru Vikan, Nýtt líf, Mannlíf, Séð og heyrt, Gestgjafinn, Hús og híbýli, Júlía og Sagan öll,“ segir í fréttatilkynningunni.

Karl Steinar Óskarsson verður áfram framkvæmdastjóri Birtíngs og Björn Ingi Hrafnsson útgefandi.

Samkeppniseftirlitinu og Fjölmiðlanefnd hafa verið sent erindi um samrunann, eins og lög gera ráð fyrir, og eru viðskiptin gerð með fyrirvara um samþykki eftirlitsstofnana.

„Markmið samrunans að mynda stærra og öflugra fyrirtæki á fjölmiðlamarkaði sem er betur í stakk búið til að takast á við breyttar aðstæður á markaði hér á landi og mæta síharðnandi samkeppni við aðra fjölmiðla, ekki síst erlenda.

Gert er ráð fyrir að sameiginleg velta Pressunnar og tengdra félaga árið 2017 verði um tveir milljarðar króna. Starfsfólk samstæðunnar verður vel á annan hundrað, en starfsstöðvar eru í Kringlunni, Garðabæ, Ármúla og Skeifunni,“ segir að lokum í fréttatilkynningunni.