Johnni Poulsen hefur verið ráðinn forstjóri P/F Magn, dótturfélags Skeljungs hf. í Færeyjum. Mun hann taka við því starfi 16. október næstkomandi. Hann hefur starfað sem fjármálastjóri P/F Magn síðastliðin 11 ár en hann mun áfram sinna því starfi samhliða starfi forstjóra félagsins.

Auk þess situr Johnni í stjórn Føroya Tele P/F og H-Dygd P/F. Johnni er með B.S. gráðu í viðskiptafræði frá árinu 1995 og M.Sc. í viðskipta- og hagfræði frá árinu 2000 frá Copenhagen Business School.