Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, átti í dag fund með Wang Chao, varautanríkisráðherra Kína, fjölmennasta ríkis heims, sem staddur var hér á landi. Ráðherrarnir ræddu málefni Norður-Kóreu og kom utanríkisráðherra á framfæri áhyggjum sínum af stöðu mála á Kóreuskaga. Fór ráðherra þess á leit við Wang að kínversk stjórnvöld beittu áhrifum sínum gagnvart valdhöfum í Norður-Kóreu og gerðu allt sem í þeirra valdi stendur til að draga úr spennu, en sem kunnugt er hefur Norður-Kóreustjórn stefnt að því að koma sér upp kjarnavopnum að því er kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Staða mannréttindamála var enn fremur til umræðu á fundinum og hvatti Guðlaugur Þór kínversk stjórnvöld til úrbóta heima fyrir og til að fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi.

Ánægðir með fjölgun kínverskra ferðamanna

Tvíhliða samskipti Íslands og Kína voru einnig rædd, en á síðasta ári voru 45 ár liðin frá því að Ísland og Kína tóku upp stjórnmálasamband. Verslun og viðskipti milli ríkjanna hafa aukist verulega frá því að fríverslunarsamningur gekk í gildi árið 2014 og lýstu ráðherrarnir ánægju með þá þróun mála.

Þá voru ráðherrarnir sammála um mikilvægi þess að greiða fyrir útflutningi á sauðfjárafurðum, fiskeldisafurðum, mjöli og lýsi til Kína og ljúka sem fyrst því vottunarferli sem nú er yfirstandandi. Þá hefur kínverskum ferðamönnum á Íslandi fjölgað ört og stefnir í að þeir verði allt að 100.000 talsins á þessu ári til samanburðar við 67 þúsund í fyrra og 25 þúsund árið 2015. Lýstu þeir Guðlaugur og Wang gagnkvæmri ánægju sinni með þessa þróun.

Ísland mögulega með í Silkileiðinni

Rætt var um samstarf á sviði endurnýjanlegra orkugjafa og um loftlagsmálin. Þá ræddu ráðherrarnir góð samskipti ríkjanna í málefnum norðurslóða. Kínverjar kynntu fyrir sitt leyti áætlun sína um belti og braut (e. Belt and Road Initiative), sem stundum er nefnd hin nýja Silkileið, og kom til umræðu möguleg þátttaka Íslands í áætluninni í ljósi nýrra flutningsleiða á norðurslóðum.

Í gær átti kínverski varautanríkisráðherrann fund með embættismönnum utanríkisráðuneytisins, en vararáðherrann var hér í landi í tilefni af reglubundnu samráði Íslands og Kína. Stefán Haukur Jóhannesson ráðuneytisstjóri leiddi viðræðurnar fyrir Íslands hönd sem tóku meðal annars til tvíhliða mála, málefna norðurslóða, mannréttindamála og alþjóðamála, ekki síst stöðu mála í Norður-Kóreu.