Tveir eru í framboði til formanns VR og ellefu eru í framboði til stjórnar fyrir kjörtímabilið 2017 til 2019. Eftir að framboðsfrestur rann út á hádegi í gær kom í ljós að auk Ólafíu B. Rafnsdóttur, núverandi formanns er Ragnar Þór Ingólfsson einnig í framboði.

Listi trúnaðarráðs VR í trúnaðarráð félagsins fékk ekkert mótframboð og telst hann því löglega kjörinn.

En í stjórn bárust alls ellefu framboð, en annmarkar voru á nokkrum þeirra og var frambjóðendum gefinn frestur til að laga þá áður en kosningar hefjast þann 7. mars næstkomandi.