Undirbúningsnefnd vegna aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands hefur ráðið Ragnheiði Jónu Ingimarsdóttur, menningarfulltrúa Eyþings, sem framkvæmdastjóra vegna undirbúnings hátíðarhalda í tilefni aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands.

Ragnheiður Jóna hefur tíu ára reynslu af störfum á vettvangi menningar og lista, að því er segir í fréttatilkynningu.  Undanfarin ár hefur hún starfað sem menningarfulltrúi Eyþings og sem verkefnastjóri uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra.

Ragnheiður Jóna lauk MA-prófi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst og BA-prófi í nútímafræði frá Háskólanum á Akureyri.

100 ára afmæli sjálfstæðis, frelsis og fullveldis

Þingsályktun um hvernig minnast skuli aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands var samþykkt á Alþingi í október 2016 og afmælisnefndin kjörin í desember 2016.

Verkefni nefndarinnar er að undirbúa viðburði, verkefni og hátíðarhöld allt árið 2018, þegar öld er liðin frá því að íslenskt ríki, sjálfstætt, frjálst og fullvalda, var á ný stofnað með sambandslögunum 1918.

Valin úr hópi 79 umsækjenda

Í nefnd um aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands sem kjörin var af Alþingi 22. desember 2016 eru: Einar K. Guðfinnsson, Þórunn Sigurðardóttir, Einar Brynjólfsson, Þorsteinn Sæmundsson, Páll Rafnar Þorsteinsson, Guðlaug Kristjánsdóttir og Kristján Möller.

Starf framkvæmdastjóra var auglýst laust til umsóknar 4. febrúar sl. Alls bárust 79 umsóknir um starfið. Capacent var falin umsjón ráðningarferlisins og sá Auður Bjarnadóttir ráðgjafi um skipulagningu og framkvæmd þess.