Ragnheiður Skúladóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins.

Ragnheiður er vel kunnug menningarheiminum enda var hún deildarforseti sviðslistadeildar LHÍ frá 2000-2011 og leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar frá 2012-2015 segir í fréttatilkynningu. Árið 2008 stofnaði Ragnheiður, ásamt öðrum, sviðslistahátíðina LÓKAL þar sem hún er enn þann dag í dag listrænn stjórnandi ásamt Bjarna Jónssyni.

"Það er mér mikil ánægja að halda áfram störfum fyrir Íd en þar hef ég gengt stöðu framkvæmdarstjóra í afleysingum undanfarið ár" segir Ragnheiður en hún tekur við starfinu af Kristínu Ögmundsdóttur.

„Ég hef löngum sóst eftir því að starfa þar sem áræðni og frumsköpun er höfð að leiðarljósi og það er svo sannarlega raunin hjá Íslenska dansflokknum.“