Ragnhildur Geirsdóttir hefur verið ráðin sem aðstoðarforstjóri Wow air. Sem aðstoðarforstjóri mun megin verkefni hennar felast í að hafa umsjón með daglegum rekstri félagsins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Wow air.

Með tilkomu Ragnhildar mun Skúli Mogensen stofnandi og forstjóri félagsins einbeita sér meir að langtíma stefnumótun og uppbyggingu Wow  air erlendis sem og innleiðingu á tækninýjungum sem hafa ekki áður þekkst í flugheiminum.

Ragnhildur hefur síðustu fimm ár hefur hún gegnt stöðu framkvæmdastjóra Rekstrar og upplýsingatækni hjá Landsbankanum hf. Þar áður var hún forstjóri Promens hf. auk þess sem hún var framkvæmdastjóri Rekstrarstýringar og forstjóri Flugleiða hf./FL Group hf. Ragnhildur hefur einnig setið í fjölmörgum stjórnum fyrirtækja á Íslandi og erlendis.

Ragnhildur er verkfræðingur og viðskiptafræðingur að mennt. Hún lauk CS prófi í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands 1995, MS prófi í iðnaðarverkfræði frá Háskólann í Wisconsin árið 1996 og MS prófi í viðskiptafræði frá sama skóla 1998.