Fiskistofa fékk í sumar vitneskju um myndefnið og þann vitnisburð sem honum fylgdi og birtist í fréttaskýringaþættinum Kveik í gærkvöldi. Sett hefur verið af stað rannsókn og málið sett í farveg sem mögulegt brotamál en stofnunin var bundin ákveðnum trúnaði gagnvart heimildarmanninum. Síðan þetta mál kom upp hefur Fiskistofa sent eftirlitsmenn með í veiðiferðir hjá útgerðinni Brimi sem gerir út togarann Kleifaberg.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Fiskistofu vegna umfjöllunar fréttaskýringarþáttarins Kveiks í gærkvöldi um brotamál og eftirlit í sjávarútvegi.
Í tilkynningu Fiskistofu segir að stjórnendur stofnunarinnar hafi margoft bent á galla í reglum um vigtun afla bæði gagnvart ráðuneyti, stjórnmálamönnum og á opinberum vettvangi.
Þar segir ennfremur [millifyrirsagnir eru Fiskifrétta].
Nefna má að Fiskistofa gerði tillögur að mögulegum breytingum á vigtarlöggjöfinni og skilaði til ráðuneytis sjávarútvegsmála. Ráðuneytið vann frumvarp á grundvelli þeirra sem dagaði uppi. Stofnunin telur sem fyrr mjög brýnt að endurskoða reglur um vigtun sjávarfangs með þeim hætti að eftirlit og viðbrögð við brotum geti verið markvissari en nú er.
14 mál rannsökuð
Fiskistofa hélt úti svonefndum bakreikningsrannsóknum á mögulegum brotum á vigtarlöggjöfinni á árunum 2006 - 2012. Niðurstaða þeirra 14 mála sem tekin voru fyrir reyndist vera að 9 voru felld niður vegna þess að ekki var sýnt fram á óeðlilegt misræmi, 2 málum var vísað til annarra stjórnvalda vegna gruns um tegundasvindl og einu máli lauk fyrir dómstólum. Það varð ljóst að árangur af þessum rannsóknum var í engu samræmi við þann tíma og fjármuni sem í þær var lagt. Því var tekin sú ákvörðun í samráði við ráðuneytið að stofnunin beindi kröftum sínum að öðru og árangursríkara eftirliti á grundvelli áhættugreiningar.
Sjómenn tilkynna frávik
Fiskistofa hefur í mörg ár lagt áherslu á birtingu upplýsinga um veiðar, vigtun og vinnslu. Gagnsæinu í þessum upplýsingum er m.a. ætlað að stuðla að því að allir aðilar í sjávarútvegi geti átt þátt í að halda aftur af brotum. Þetta hefur skilað góðum árangri. Þannig eru niðurstöður vigtunar alls landaðs afla aðgengilegar á vef Fiskistofu. Áhafnir hafa t.d. verið í sambandi við Fiskistofu vegna frávika í ísmagni við endurvigtun sem þær telja ekki stemma. Sjómennirnir eru þeir sem ísa fiskinn og sé afli að hluta í raun skráður sem ís við endurvigtun er verið að hafa af áhöfninni réttan aflahlut og flytja ágóðann af útgerð til vinnslu. Sjómenn hafa því tekið þessari upplýsingagjöf fagnandi og telja hana veita aðhald.
Áhættugreining
Gagnaöflun Fiskistofu er einnig notuð til svonefndrar áhættugreiningar þar sem leitast er við að meta hvar árangursríkast er að bera niður í eftirliti út frá frávikum í aflasamsetningu eða íshlutfalli, svo dæmi séu nefnd. Þetta hefur reynst vel. Nefna má að birting frávika við endurvigtun eftir því hvort eftirlitsmaður er viðstaddur eða ekki hefur dregið fram þau fyrirtæki þar sem endurvigtun sker sig úr. Með þessu móti hefur verið hægt að gera störf eftirlitsmanna markvissari. Fjöldi eftirlitsmanna og viðvera þeirra á sjó, í höfnum og vinnslu er því ekki einhlítur mælikvarði á umfang og árangur eftirlitsins.