Rarik hagnaðist um 2.040 milljónir króna árið 2016 sem er meira en áætlanir gerðu ráð fyrir, en hagnaðurinn lækkaði þó um 8% frá árinu 2015 þegar hagnaður ársins nam 2.220 milljónum króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 5.066 milljónum króna eða 34,5% af veltu ársins, samanborið við 31,3% á árinu 2015. Handbært fé frá rekstri nam 3.487 milljónum króna.

Rekstrartekjur Rarik hækkuðu um 10,7% frá fyrra ári og námu 14.670 milljónum króna og rekstrargjöld hækkuðu einnig um 6% milli ára og námu árið 11.399 milljónir króna árið 2016.

„Rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á árinu 2016 nam 3.271 milljónum króna sem er 31% hækkun frá fyrra ári. Styrking krónunnar og lág verðbólga gerði það að verkum að fjármagnsliðir voru hagstæðari en áætlað var. Hagnaður var því meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir.  Fjármagnsgjöld umfram fjármagnstekjur námu um 293 milljónum króna, en á árinu 2015 námu þau 850 milljónum króna. Hlutdeild í tapi Landsnets hf., hlutdeildarfélags RARIK, sem færð er í rekstrarreikning nam 344 milljónum króna á móti hlutdeild í hagnaði að upphæð 903 milljónum á árinu 2015,“ segir í tilkynningu Rarik til kauphallarinnar.

310 milljón króna arðgreiðsla

Heildareignir Rarik námu 57.722 milljónum króna í lok árs 2016 og lækkuðu um 29 milljónir milli ára. Heildarskuldir Rarik námu 21.588 milljónum króna og lækkuðu um 540 milljónir milli ára. Eigið fé var 36.134 milljónir króna og er eiginfjárhlutfall því 62,6% samanborið við 61,7% í árslok 2015. Fjárfestingar ársins að frádregnu söluandvirði seldra rekstrarfjármuna námu 3.029 milljónum króna, sem er minna en áætlað var en um 597 milljónum króna hærra en árið á undan.

Stjórn félagsins leggur til að greiddar verði 310 milljónir króna í arð til eigenda Rarik sem er Ríkissjóður Íslands.