Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,71% í dag og endaði í 1,797 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 4,39% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa N1, eða um 2,36% í 675 milljóna króna viðskiptum, en verð á hvert bréf er þá 49,80 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Reita, eða um 0,24% í 82 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Reita nemur þá 82,50 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Marel um 2,75% í 680 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Marel er þá 230 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa Eikar um 1,28% í 180 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 8,51 króna.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmur 2,2 milljarður króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 4 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,8% í dag í 2,2 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í dag í 3,9 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 1,1 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,2% í 2,9 milljarða króna viðskiptum.