Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 2,62% í dag og endaði í 1823,39 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 3,03% frá áramótum.

Ekki varð nein hækkun á gengi hlutabréfa í dag.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 3,47% í 1,5 milljarða króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Icelandair er 34,75 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Össurar um 0,63% í viðskiptum upp á 1 milljarð króna. Hver hlutur félagsins kostar 477 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 4,8 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 1,8 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 2,5% í dag í 3,8 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði lítillega í dag í 1,9 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 0,7 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 1,1 milljarða króna viðskiptum.