Reginn hf. skrifaði í gær undir samning um einkaviðræður og helstu skilmála um fyrirhuguð kaup á öllu hlutafé dótturfélaga Fast-1 slhf., HTO ehf. og Fast-2 ehf.

Stærstu eignir félaganna sem um ræðir eru  Katrínartún 2 (turninn Höfðatorgi) og Borgartún 8-16. Aðrar eignir eru Skúlagata 21, Vegmúli 3 og Skútuvogur 1. Samtals telur fasteignasafnið 44 þúsund fermetra ásamt bílakjallara með yfir 600 bílastæðum.

Eignirnar eru í 98% útleigu til traustra leigutaka, en meðal stærstu leigutaka eru Reykjavíkurborg, Fjársýsla Ríkisins, Reiknistofa Bankanna og Fjármálaeftirlitið.

Heildareign Regins verður 366 fermetrar

Með viðskiptunum verður eignasafn Regins hf. 366 þúsund fermetrar og falla fyrirhuguð kaup vel að fjárfestingastefnu félagsins sem felur m.a í sér að auka hlut félagsins í hágæða atvinnuhúsnæði á sterkum markaðssvæðum, að því er segir í fréttatilkynningu.

Með undirritun samningsins hefja aðilar einkaviðræður um kaupin með það að markmiði að komast að samkomulagi um efni endanlegs kaupsamnings. Viðræður milli aðila munu byggja á forsendum og skilmálum samningsins að teknu tilliti til niðurstöðu áreiðanleikakannana.

Fyrirhuguð kaup miðast við að heildarvirði HTO og Fast-2 sé metið á 23.200 milljónir króna. Endanlegt kaupverð hlutafjár mun ráðast af skuldastöðu félaganna við afhendingu.

Greitt með hlutabréfum og skuldabréfum

Gangi viðskiptin eftir mun Reginn gefa út nýtt hlutafé að markaðsvirði 5.800 milljóna króna á meðalgengi hlutabréfa Regins undangengis mánaðar fyrir undirritun kaupsamnings auk þess sem viðskiptin verða fjármögnuð með útgáfu á nýjum skuldabréfaflokki undir útgáfuramma Regins.

Takmörkun verður á viðskiptum með 2/3 af hlutum sem gefnir verða út vegna viðskiptanna, í annars vegar 2 mánuði og hins vegar 4 mánuði.

Viðskiptin eru m.a. háð skilyrðum um að samkomulag náist um endanlegan kaupsamning, niðurstöðu áreiðanleikakannana, samþykki hluthafafundar fyrir aukningu hlutafjár, samþykki stjórnar fyrir útgáfu skuldabréfaflokks og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Gangi viðskiptin eftir er gert ráð fyrir að þeim ljúki á 2. ársfjórðungi 2018.

Eignasafnið stækkar um 14%

Ef af kaupunum verður er áætlað að EBITDA Regins hækki um 1.240 milljónir króna á ársgrundvelli og eignasafn stækki um 14% miðað við fermetra. Ávöxtunarkrafa kaupanna er um 5,3%.

Nýr eignarhlutur í Regin, ef af verður, yrði tæp 13% sem afhendist seljanda, Fast-1 slhf. Á meðal stærstu hluthafa Fast-1 eru Gildi-lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóður verzlunarmanna með tæplega 20% hlut hver, Festa lífeyrissjóður með tæplega 10% hlut og Almenni lífeyrissjóðurinn með tæplega 7% hlut.