Fasteignafélagið Reginn er í samningaviðræðum um kaup á Austurstræti 22 og hefur boðið tæplega 1,4 milljarða í eignina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Fram kemur í tilkynningunni að félagið Jörundur ehf. sem er í eigu Reykjavíkurborgar auglýsti til sölu eignina Austurstræti 22 í Reykjavík. Fasteignin er í raun þrjú hús  Lækjargata 2, Austurstræti 22 og Austurstræti 22a, öll á sama fastanúmeri 200-2668. Um er að ræða hús sem voru endurbyggð á reitnum í kjölfar bruna 2007. Húsin sem eru hágæða eignir, staðsettar á einum besta stað í miðborginni eru byggð  eftir verðlaunatillögum Studio Granda o.fl.  Húsin eru alls 2.386 m2 m.v. birt flatarmál.

Tilboð Regins hljóðaði upp á 1.360 m.kr.  Húsin eru í fullri útleigu og starfa þar m.a. fyrirtækin Grillmarkaðurinn, Lögmenn Lækjargötu, Nordic Store, Caruso veitingahús og Listaháskóli Íslands. Að meðaltali er lengd leigusamninga rúmlega 5. ár. Tekjur m.v. núverandi leigusamninga eru rúmlega 81 m.kr á ári.