Íslandsbanki hefur tilkynnt um breytt kortatímabil á kreditkortum bankans og verður það frá 27. degi mánaðarins til 26. dags næsta mánaðar.

Mun breytingin taka gildi þannig að tímabilið frá 22. maí til 26. júní verður lengra en venjulega, en eindagi er sem fyrr annar virki dagur mánaðarins, sem í júlí lendir á 3. júlí.

Því má búast við hærri kreditkortareikningi í júlí heldur en venjulega fyrir viðskiptavini Íslandsbanka.