Úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 1,1% í dag og stendur í 1.923,78 stigum. Gengi vísitölunnar hefur hækkað um 12,46% frá ársbyrjun. Heildarvelta á mörkuðum nam rúmum 9 milljörðum, þar af nam velta á hlutabréfamarkaði 4 milljarða og á skuldabréfamarkaði 5 milljarðar.

Gengi hlutabréfa Reita fasteignafélags hækkaði mest í dag eða um 2,87% í 381,7 milljón króna viðskiptum. Einnig hækkaði gengi bréfa Icelandair Group talsvert eða um 2,56% í 642 milljón króna viðskiptum. Gengi bréfa Skeljungs hækkaði jafnframt um 2,51% í tæplega 150 milljón króna viðskiptum.

Gengi bréfa HB Granda lækkaði hins vegar um 1,11% í 37,1 milljón króna viðskiptum en mest velta var með bréf Marel, en þar hækkaði gengi þeirra um 0,69% í 991,5 milljón króna viðskiptum.

Vísitölur GAMMA

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 0,4% í dag í 8,3 milljarða viðskiptum. Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 1% í dag í 3,8 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í dag í 4,1 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 0,4 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,4% í 3,7 milljarða viðskiptum.  Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,1% í dag í 0,5 milljarða. viðskiptum.