Reitir fasteignafélag hafa verið teknir inn í Úrvalsvísitöluna í stað Tryggingamiðstöðvarinnar, en þetta kemur fram í tilkynningu frá Nasdaq Iceland .

Eftir breytinguna eru eftirfarandi félag í vísitölunni: Eimskipafélag Íslands, Hagar, HB Grandi, Icelandair Group, Marel, N1, Reitir fasteignafélag og Vátryggingafélag Íslands.

Endurskoðun vísitölunnar fer fram hjá kauphöllinni tvisvar sinnum á ári. Hin nýja samsetning mun taka gildi þann 1. júlí næstkomandi.