Frjáls fjölmiðlun ehf. sem meðal annars rekur DV auk fleiri fjölmiðla tapaði um 43,6 milljónum króna á þeim fjórum mánuðum sem það starfaði. Þetta kemur fram á vef Kjarnans . Tekjur félagsins voru um 81,4 milljónir króna en félagið starfaði frá september til áramóta.
Eignir frjálsrar fjölmiðlunar eru metnar á 529 milljónir króna og skuldir félagsins voru 542 milljónir króna um síðaustu áramót.
Frjáls fjölmiðlun keypti í fyrra fjölmiðlanna DV, DV.is, Eyjuna, Pressuna, Bleikt, Birtu, Doktor.is, 433.is og sjónvarpsstöðina ÍNN. Hluti skulda Pressunnar voru skildir eftir í henni og félagið svo sett í þrot. Alls var kröfum upp á 315 milljónir króna lýst í þrotabú Pressunnar en skiptastjóri búsins viðurkenndi kröfur upp á 110 milljónir króna en hafnaði öðrum.
Eigandi Frjálsrar fjölmiðlunar er félagið Dalsdalur ehf. Eini skráði eigandi þess er Sigurður G. Guðjónsson lögmaður.