Rough Guides, sem er í eigu hins virta útgefanda Penguin Random House, hefur gefið út ferðabækur í meira en 30 ár. Nú, í byrjun nýs árs, hefur Rough Guides birt lista yfir 10 borgir sem þeir mæla með að fólk heimsæki árið 2016. Í efsta sæti listans er Reykjavík.

„Aukinn fjöldi ferðamanna sækir Reykjavík heim í þeim tilgangi að skoða listasenuna, upplifa næturlífið og náttúruperlurnar sem eru rétt handan hornsins," segir meðal annars í umfjöllun Rough Guides, sem lesa má hér .

Topp 10 listi Rough Guides:

  1. Reykjavik, Ísland.
  2. Mexico City, Mexíkó.
  3. Seoul, Suður-Kórea.
  4. Ljubljana, Slóvenía.
  5. Wroclaw, Pólland.
  6. Nashville, USA
  7. Amsterdam, Holland.
  8. Hull, England.
  9. Vancouver, Kanada.
  10. Agra, Indland.