Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var jákvæð um 303 milljónir króna. en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 2.141 milljón króna. Þetta kemur fram í tilkynningu .

Rekstrarniðurstaðan er því 1.838 milljónum króna lakari en gert var ráð fyrir. Í tilkynningunni segir að helstu ástæður megi rekja annars vegar til minni hagnaðar Orkuveitu Reykjavíkur vegna gjaldfærslu gangvirðisbreytinga innbyggðra afleiða í raforkusamningum vegna lækkandi álverðs og hins vegar til lakari afkomu A hluta heldur en áætlun gerði ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 6.885 mkr sem er 232 mkr lakari niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok tímabils samtals 513.207 milljónum króna, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 292.812 milljónir króna og eigið fé nam 220.395 milljónum króna en þar af nam hlutdeild meðeigenda 11.744 milljónum króna.  Eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 42,9% en var 43,1% um síðustu áramót.

Rekstrarniðurstaða A-hluta neikvæð um þrjá milljarða

Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 3.038 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði neikvæð um 1.865 milljónir króna á tímabilinu og er niðurstaðan því lakari en gert var ráð fyrir, sem nemur 1.173 milljónum króna.

Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var neikvæð um 2.591 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 1.434 milljónir króna eða 1.157 milljónum króna lakari en áætlun gerði ráð fyrir.   Samkvæmt tilkynningu skýrist lakari rekstrarniðurstaða meðal annars af lægri tekjum af sölu byggingaréttar og sölu fasteigna eða 552 milljónum króna undir áætlun og hækkun launakostnaðar umfram áætlun um 403 milljónir króna.

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, Eignasjóð og Bílastæðasjóð.

Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Orkuveita Reykjavíkur, Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf.