Varðskipið Þór og TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, hafa síðan í gær fylgst með vinnu rannsóknarskipsins Seabed Worker sem kom inn í efnahagslögsöguna í gærmorgun. Skipið mun næstu daga leita að verðmætum í flaki þýska skipsins SS Minden sem sökk 24. júní 1939 um 120 sjómílur suðaustur af Kötlutanga.

Frá þessu segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Þar segir að Umhverfisráðuneytið veitti fyrirtækinu Advanced Marine Services undanþágu á gildistíma starfsleyfis sem fyrirtækið hafði áður fengið frá stofnuninni og gilti til 1. maí 2018. Varðskipið Þór er farið af svæðinu en Landhelgisgæsla Íslands mun áfram fylgjast með framkvæmdunum næstu daga en þær hófust formlega á sjöunda tímanum í gær.

Frá upphafi framkvæmda hefur Seabed Worker þrjá sólarhringa til að freista þess að ná verðmætum úr flaki SS Minden.

Fjársjóðsleit AMS hefur vakið töluverða athygli og má kynna sér framgang málsins hér og hér .