Arion banki seldi 2,8 milljarða króna hlut í Reitum fasteignafélagi í morgun.

Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins hafði Arctica Finance milligöngu um viðskiptin. Í frétt sem birtist á Vísi.is kemur fram að Arion banki seldi samtals 30 milljónir hluta í Reitum fasteignafélagi, á genginu 93,9 krónur á hlut og að kaupendurnir voru að langstærstum hluta íslenskir lífeyrissjóðir.

Gengi hlutabréfa félagsins hefur hækkað um tæplega 0,48% í 3.026 milljón króna viðskiptum í dag þegar þetta er ritað.