Hljómsveitin Sigur Rós og tónlistarhúsið Harpa hafa rift samningum við félagið KS Productions sem er í eigu Kára Sturlusonar um tónleikahald hljómsveitarinnar í Hörpu í desember að því er segir í fréttatilkynningu.

Ástæður þessa eru vanefndir tónleikahaldarans og trúnaðarbrestur vegna ráðstöfunar hans á hluta af miðasölutekjum, sem hann óskaði eftir að yrðu leystar út m.a. vegna meints kostnaðar við undirbúning verkefnisins.

Við riftun samnings, sem átti sér stað fyrir rúmum mánuði síðan, átti tónleikahaldarinn ekki lengur réttmætt tilkall til miðasölutekna viðburðarins en hefur ekki, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir beggja fyrrum samningsaðila hans, orðið við kröfum um endurgreiðslu á umræddum fjármunum.

Til að tryggja hagsmuni Hörpu og Sigur Rósar hefur Harpa því farið fram á kyrrsetningu á eignum tónleikahaldarans til tryggingar kröfunni og stefnt honum til greiðslu á þeim 35 m.kr. af miðasölutekjum sem hann fékk greiddar. Er málið nú í farvegi hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.

„Við treystum því að þessir fjármunir verði endurgreiddir þar sem umræddur tónleikahaldari er ekki lengur aðili að verkefninu,“ segir Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu. „Aðgerðirnar sem Harpa og Sigur Rós hafa nú farið í eru til þess fallnar að tryggja það með öllum lagalega tiltækum ráðum.“

Harpa og Sigur Rós hafa unnið saman í fullum trúnaði frá því ljóst varð að þessi trúnaðarbrestur hafði átt sér stað og tónleikahaldarinn var ekki lengur ábyrgðarmaður verkefnisins.

Sena Live hefur tekið við umsjón fernra tónleika Sigur Rósar í Hörpu, sem eru þegar uppseldir, auk þess að stýra framkvæmd á alþjóðlegu listahátíðinni Norður&Niður sem jafnframt verður haldin í Hörpu á milli jóla og nýárs.