Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag íslenska ríkið til að greiða þremur innflutningsfyrirtækjum viðbótardráttarvexti vegna oftekins útboðsgjalds vegna tollkvóta á búvörum. Þetta kemur fram í frétt vef Félags atvinnurekenda.

„Á árunum 2009 til 2016 fluttu Innnes ehf., Hagar verslanir ehf. og Sælkeradreifingin ehf. inn tilteknar landbúnaðarvörur á grundvelli tollkvóta, annars vegar svokallaðra WTO-tollkvóta og hins vegar ESB-tollkvóta. Þann 16. desember 2013 stefndu fyrirtækin íslenska ríkinu og kröfðust endurgreiðslu gjaldanna sem þau höfðu greitt vegna tollkvótanna. Með dómum Hæstaréttar Íslands 21. janúar 2016 var gjaldtaka ráðherra vegna tollkvótanna dæmd ólögmæt og íslenska ríkinu gert að endurgreiða gjöldin. Í kjölfar dómana endurgreiddi íslenska ríkið hin ofteknu gjöld og námu endurgreiðslurnar u.þ.b. 400 milljónum króna.

Í dómunum sem féllu í dag var deilt um útreikning dráttarvaxta vegna endurgreiðslu íslenska ríkisins á ofangreindum gjöldum. Stefnendur héldu því fram að íslenska ríkið hefði vangreitt dráttarvexti við endurgreiðslu gjaldanna. Aðalágreiningur málanna laut að því við hvaða tímamark skyldi miða upphafstíma dráttarvaxta. Stefnendur töldu að miða skyldi upphafstímann við 16. desember 2013, þ.e. daginn sem fyrirtækin höfðuðu upphaflega málið vegna endurgreiðslu gjaldanna. Frá því tímamarki hefði íslenska ríkinu mátt vera ljóst að innheimta gjaldanna væri ólögmæt. Íslenska ríkið taldi hins vegar að miða skyldi útreikning dráttarvaxtanna við mun síðara tímamark. Röksemdafærsla íslenska ríkisins byggðist fyrst og fremst á þeirri málsástæðu að ríkið hefði fyrst verið krafið um endurgreiðslu viðkomandi fjárhæða með kröfubréfum dagsettum þann 27. janúar 2016,“ segir í fréttinni.

„Þetta er vissulega ánægjulegt og í fullu samræmi við það sem lagt var upp með,“ segir Páll Rúnar M. Kristjánsson, lögmaður fyrirtækjanna. „Ríkið hélt uppi ágætisvörnum í málinu en í fullri sanngirni þá er þetta mjög rökrétt og eðlileg niðurstaða sem ég vona að ríkið muni una án frekari málalenginga. Þegar ríkið hefur oftekið skatta af fólki þá á það möglunarlaust að standa skil á endurgreiðslu sinni og það að fullu.”