Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hefur sent frá sér ályktun þar sem lagst er gegn því að ríkið kaupi erlend bankagögn sem gætu innihaldið upplýsingar um skattsvik hafi þeim verið aflað með ólögmætum hætti.

Afar slæmt fordæmi skapast ef greiða á einstaklingum verðlaunafé fyrir að afla sönnunargagna þegar löglegar heimildir sem ríkið hefur til öflunar sönnunargagna bresta. Það væri óviðunandi ef lögreglan verðlaunaði þjóf fyrir að brjótast inn í hús og afla sönnunargagna, þegar lögreglan fær ekki húsleitarheimild. Að sama skapi á ekki að borga tölvuþrjóti verðlaunafé fyrir að brjótast inn í fjármálastofnanir og stela upplýsingum.

Þess utan er alls óvíst hversu nothæf gögnin eru og hvort þau muni skila tilætluðum árangri. Þá er einnig líklegt að skattféð sem notað yrði til kaupanna á gögnunum yrði notað til að fjármagna ólöglega starfsemi, þar sem ljóst er að gagnanna var aflað af aðilum við ólöglega starfsemi.

Félagið fordæmir skattsvik og telur mikilvægt að þau séu upprætt, en minnir á að tilgangurinn helgar ekki alltaf meðalið,“ segir í ályktun félagsins.