Tap ríkisins vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar og síðar sölu á Sparisjóði Svarfdæla og Sparisjóði Norðfjarðar gæti í besta falli verið 800 milljónir, en líklegra verður að telja að það verði meira.

Talan 800 milljónir miðast við að sparisjóðirnir verði seldir á bókfærðu virði eigin fjár sjóðanna við júnílok. Líklegt verður hins vegar að teljast að lægra verð fáist fyrir þá, að því er segir í Morgunblaðinu í dag.

Landsbankinn hefur gert tilboð í Sparisjóð Svarfdæla og í Sparisjóð Norðfjarðar. Íslandsbanki hefur einnig sett fram tilboð í síðarnefnda sjóðinn.