Ríkisstjórnin hyggst stórbæta aðgengi almennings að fjárhagsupplýsingum ríkisins. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að mikilvægt skref í þessa veru verður stigið um miðjan mars þegar vefurinn opnirreikningar.is verður opnaður. Þar verður hægt að skoða greiðsluupplýsingar um tvö hundrað stofnanna.

„Á vefnum munu árlega birtast á bilinu 300-400 þúsund reikningar vegna kaupa ríkisins á vörum og þjónustu. Hægt verður að leita að reikningum á vefnum með ýmsum leiðum, t.d. út frá stofnunum eða tegund kostnaðar. Á vefnum verða ennfremur birt skönnuð fylgiskjöl með reikningum, en með því gengur Ísland lengra en önnur ríki sem hafa unnið svipuð verkefni,“ segir í tilkynningunni.

Hugað að öryggis- og persónuverndarmálum

Tekið er sérstalega fram í tilkynningunni að sérstaklega verði hugað að öryggismálum og sjónarmiðum um persónuvernd. Sérstakar síur koma í veg fyrir að viðkvæmar persónuupplýsingar birtist, svo sem vegna læknisheimsókna, bóta eða launa.

„Vinna við verkefnið hófst á síðasta ári og er henni að mestu lokið. Í fyrstu verða upplýsingar frá aðalskrifstofum ráðuneyta aðgengilegar á nýja vefnum. Í næstu áföngum verða stofnanir í A-hluta ríkissjóðs hluti af kerfinu. Stefnt er að því að verkefnið verði að fullu komið til framkvæmda um áramót,“ er lokum tekið fram í tilkynninguna.